Hagnýtar upplýsingar
Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið. Á Hofi leggjum við áherslu á að gott samstarf myndist milli foreldra og leikskólans. Aðlögunin tekur alla jafna þrjá virka daga en getur tekið lengri tíma, allt fer það eftir barninu.
Leikskóladvöl hefst með heimsókn foreldra. Þeir eru boðaðir í viðtal við kennara á deildinni.
Leikskólinn er með þátttökuaðlögun fyrir börn sem eru að byrja í leikskóla í fyrsta sinn. Hugmyndin er að barnið læri að vera í nýjum aðstæðum með foreldrum sínum. Aðlögun tekur þrjá daga og eru foreldrar inni á deild með börnum sínum allan tímann (nema þegar þau sofa). Á fjórða degi koma börnin á sínum tíma og kveðja foreldrana.
Dagur 1 frá kl. 9:00-12:30
Dagur 2 frá kl. 9:00-14:00
Dagur 3 frá kl. 9:00-15:00
Á öðrum degi í aðlögun verður fundur með leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra í hádeginu á meðan börnin fara í hvíld eða sofa. Fundurinn er frá 11:45 – 13:00.
Fyrir börn sem hafa verið í leikskóla er aðlögunin samkomulagsatriði. Aðlögunin hefst yfirleitt í ágúst.
Leikskólataskan
Hafið alltaf viðeigandi útifatnað og aukaföt í tösku með barninu og munið að merkja allan fatnað. Óskilaföt fara í stóru körfuna frammi á gangi. Nokkrum sinnum yfir veturinn eru óskilaföt hengd upp. Það sem ekki kemst til eigenda sinna fer í Rauða krossinn.
Það sem á að vera í töskunni alla daga er:
Veikindi barna
Ef barnið kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða af öðrum ástæðum vinsamlegast látið okkur vita. Útivist er mikilvægur þáttur leikskólastarfsins og börnin fara út á hverjum degi. Sumir foreldrar hafa tilhneigingu til að óska eftir inniveru fyrir börn sín í því skyni að verja þau gegn sýkingum og öðrum veikindum. Það er ekkert, sem bendir til þess að börn sýkist fremur í útilofti en innandyra. Eftir veikindi heima má barnið vera inni í einn til tvo daga.
Sú hefð hefur verið á Hofi að börnin baka brauðbollur í leikskólanum. Flaggað er fyrir afmælisbarnið úti.
Af gefnu tilefni viljum við minna foreldra á að ekki er leyfilegt að setja afmælisboðskort í hólf barnanna. Það veldur vonbrigðum og leiðindum hjá þeim börnum sem ekki fá kort og bendum við því foreldrum á að fá símaskrá eða aðrar upplýsingar hjá deildarstjóra.
Lyfjagjöf á leikskólatíma
Samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar er ekki æskilegt að gefa börnum lyf á leikskólatíma heldur þarf að skipuleggja lyfjagjöf þannig að lyf séu gefin heima. Í undantekningartilfellum getur það þó reynst nauðsynlegt og skal þá haft samráð við deildarstjóra barnsins.
Slys á börnum
Í leikskólanum geta alltaf orðið óhöpp eða slys á börnum. Ef þurfa þykir á nánari skoðun á slysadeild er haft samband við foreldra.
Vistunartími barna
Allir foreldrar skrifa undir dvalarsamning þegar barn byrjar í leikskóla. Það er mikilvægt að foreldrar virði samninginn og fari ekki yfir umsaminn tíma því að vinnutími starfsfólks tekur mið af honum.
Opnunartími leikskólans
Leikskólinn er opinn frá kl. 07.30 – 17.00 alla virka daga.
Hve langt er sumarfrí barna?
Sumarlokun leikskólans er ákveðin í samráði við foreldraráðið hverju sinni, leikskólinn lokar í 4 vikur.
Stefna og starfsáætlun
Leikskólinn Hof | Gullteig 19 | 105 Reykjavík | Sími: 553 9995 | This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.